Lilla er týnd
Lilla er 6 ára gömul læða og fór að heiman s.l. laugardag og hefur enn ekki skilað sér heim..
Við erum frekar nýflutt í hverfið (203 Kópavogur) og ég er pínu hrædd um að hún rati ekki heim. Hún er aldrei úti mikið meira en í 1-3 klst. í einu þannig þetta er mjög ólíkt henni.
Hún er brún/yrjótt og var með rauða og silfraða ól með bjöllu þegar hún hvarf. Hún er eyrnamerkt og ég var líka búin að skrifa heimilisfang og síma á ólina hennar. Hennar helsta sérkenni er að annar hluti andlitsins er ljós en hinn dökkur, skiptist nokkurn vegin jafnt fyrir miðju.
Tengiliðsupplýsingar:
Nafn: Unnur Karen
Netfang: unnurkaren@gmail.com
Símanúmer: 8690386
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






