Frábær árangur Ættleiðingardags Dýrahjálpar Íslands 15. ágúst
Kæru félagar og dýravinir!
Dýrahjálp Íslands var í Garðheimum laugardaginn 15. ágúst í samfloti með miklum fjölda mjálmandi ferfætlinga sem voru á staðnum í leit að nýju hlýju heimili.
Dýravinir leynast víða og fengum við því gríðarmikla hjálp frá hinum ýmsu aðilum við að auglýsa atburðinn. Þar af leiðandi var sérlega góð mæting og ásamt okkur tvífætlingum komu líka nokkrir hundar með eigendum sínum að skoða úrvalið.
Það er vægt til orða tekið að segja að árangurinn hafi verið frábær, það er nær að segja að útkoman hafi verið framúrskarandi. Af þeim 47 köttum sem voru á staðnum fengu yfir 30 kettir góð framtíðarheimili sem var framar okkar villtustu vonum.
Við þökkum öllum þeim sem aðstoðuðu okkur, mættu á staðinn og sendu okkur hlýhug.
Purrr...
Stjórn Dýrahjálpar Íslands
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






