Sælir kæru félagar og dýravinir!
Laugardaginn 15. ágúst er ætlunin að halda Ættleiðingardag Dýrahjálpar Íslands í Garðheimum, klukkan 12:00-18:00. Í þetta skiptið verðum við einungis með mjálmandi og malandi vini okkar sem eru í leit að framtíðarheimili.
Það hefur komið fram í fjölmiðlum að kettir hafa farið frekar illa í kreppunni og margir þeirra eru að leita að nýju heimili þessa dagana. Við viljum aðstoða vini okkar eins og hægt er og bjóðum því þér og þínum að koma að hitta væntanlega fjölskyldumeðlimi á þessum vettvangi.
Ættleiðingardagarnir fóru fram úr okkar björtustu vonum í apríl síðastliðinn og vonumst við til þess að sama niðurstaða náist í þetta skiptið.
Allir dýravinir eru velkomnir að kíkja til okkar til að skoða fallega og yndislega ketti ásamt því að spjalla við okkur um allt milli himins og jarðar.
Við vonumst til að sjá sem flesta og hlökkum til að sjá ykkur!!
Kær kveðja,
Stjórn Dýrahjálpar Íslands