Heim » Fréttir » Gæludýrin fá nýtt heimili
uploads/images/asa_and_helena.jpg

Zoom Smelltu á myndirnar til að stækka þær

Skráð dags: 14 Júl 2009

Senda á vin Senda á vin

Senda á Facebook Senda á Facebook

Gæludýrin fá nýtt heimili

Fréttablaðið, 04. apr. 2009 04:45

Í Garðheimum geta dýravinir orðið sér úti um gæludýr um helgina en Dýrahjálp Íslands stendur þar fyrir Ættleiðingardögum.

„Við verðum í Garðheimum í dag og á morgun frá klukkan 12 til 18 og hingað getur fólk komið sem er að leita sér að dýri sem það vill veita heimili," segir Ásbjörg Una Björnsdóttir hjá Dýrahjálp en samtökin veittu um 300 dýrum nýtt heimili á síðasta ári.

Ásbjörg vill hvetja fólk til að líta við í Garðheimum og sjá hvort það fellur ekki fyrir einhverri sætri kisu til að taka með sér heim en leitað er að framtíðarheimili fyrir.

Getur þú séð dýri í neyð fyrir fósturheimili þar til framtíðarheimili finnst?

Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.

Gerast meðlimur

Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.

Sjálfboðastarf

Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.

Áttu dýradót/fóður sem getur nýst Dýrahjálp Íslands?

Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.

Skrá dýr í heimilisleit

Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.

Skrá týnt dýr

Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.

Skrá fundið dýr

Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.