MÁLÞING Dýraverndarsambands Íslands um ábyrgt gæludýrahald
MÁLÞING Dýraverndarsambands Íslands um ábyrgt gæludýrahald verður haldið á Háskólatorgi við Suðurgötu, Reykjavík (nýja húsið), laugardag 8. nóvember n.k. kl 11-14.
Dagskrá:
kl 11.00 Setning og kynning. Ólafur R. Dýrmundsson
kl 11.05 Framsöguerindi,15-20 mínútur hvert,stuttar fyrirspurnir og ábendingar
Margrét Björk Sigurðardóttir, líffræðingur
Linda Karen Gunnarsdóttir, tamningakona
Katrín Harðardóttir,dýralæknir
Karl F. Karlsson,dýralæknir
kl 12.30 Kaffihlé.Skráning félaga,árgjald kr 2000 innheimt síðar
kl 13.00 Pallborðsumræður
kl 14.00 Málþinginu slitið
Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis en væntanlegir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir að skrá sig sem fyrst með því að senda tölvupóst í dyravernd@dyravernd.is
Einnig er hægt að skrá sig í símsvara 552-3044. Vinsamlegast dreifið þessari tilkynningu til vina og kunningja sem bera hag gæludýra fyrir brjósti.
Sjá einnig upplýsingar um málþingið á vef okkar www.dyravernd.is
Með bestu kveðjum,
Stjórn Dýraverndarsambands Íslands
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






