Djammfötin til sölu
7. október 2008 - mbl.is
„Við bjóðum til sölu föt sem hafa gleymst hjá okkur og hafa aldrei verið sótt,“ segir Kolbrún Ýr Jónasdóttir rekstrarstjóri Hressingarskálans um basar sem haldin verður á staðnum í kvöld milli klukkan sjö og tíu. Kolbrún segir hverja flík verða selda á 500 til 1500 krónur og því sé hægt að gera á basarnum góð kaup. Hluti ágóðans rennur til nýstofnaðra samtaka; Dýrahjálpar. „Við erum stolt af því að styrkja þessi góðu samtök en markmið þeirra er að finna dýrum sem annars væri lógað ný heimili.“
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






