Velkomin á vefsíðu Dýrahjálpar Íslands!

Dýrahjálp Íslands er félag sjálfboðaliða sem leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli og stofna til þess dýraathvarf.

Frá stofnun félagsins í maí 2008 hefur Dýrahjálp Íslands aðstoðað alls dýr í heimilisleit.

Hjálpa heimilislausum dýrum

29 Ágú 2008

Innlent | mbl.is | 29.8.2008 | 13:43

Nokkurir háskólaborgarar í Reykjavík hafa tekið sig saman til að hrinda stóra draumnum sínum í framkvæmd. Þetta fólk dreymir um að stofna dýraathvarf í Reykjavík, til að hjálpa heimilislausum dýrum. Heimasíða hópsins heitir dýrahjalp. org. Þar er jafnan að finna lista yfir heimilislaus dýr sem eru að leita að nýjum fjölskyldum. Í hópi þeirra sem hafa fundið nýja eigendur eru tveir dobermanhundar, boxerhundur og border collie hundar. Þá eru líka dæmi um ketti og kanínur.

Í hópnum er viðskiptafræðingur, sálfræðingur, stjórnmálafræðingur og doktorsnemi í lögfræði. Þau telja að þekkingin ætti að duga til að reka hundaathvarf á sléttu. Þær Valgerður Valgeirsdóttir viðskiptafræðingur hjá Pricewaterhouse Cooper og Sandra Lyngdorf doktorsnemi í lögfræði við Háskólann í Reykjavík segja að þetta hafi verið þeirra helsta áhugamál frá barnæsku. Þær geti ekki hugsað sér neitt skemmtilegra en að vinna með dýrum.

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/08/29/hjalpa_heimilislausum_dyrum/