Kisi er á fósturheimili Dýrahjálpar Íslands. Hann er ca. 14 mánaða svartur og hvítur högni sem fyrri eigandi varð að láta frá sér vegna flutninga. Hann hefur verið inniköttur af því fyrri eigendur búa í blokk, en hann myndi alveg elska það að komast út. Hann gæti verið soldið hvumpinn á meðan hann er að ...
Júlíus er 6 ára svartur massaður fress. Hann er mjög kelinn en hann vill ráða og vill koma til manns sjálfur (ekki hægt að taka hann upp og kúrast með hann) og malar mikið. Júlíus drekkur bara vatn úr krana og fer þá í langa sturtu með hausinn undir og nýtur þess í botn. Júlíus ...
Mikkí er 2-4 ára gömul svört læða sem leitar að framtíðarheimili. Hún hefur búið hér í nærri 4 vikur og líkar ágætlega. Hún er ljúf og góð en mjög kvekkt og hræðist skyndileg hljóð og hreyfingar. Hún hefur átt kettlinga. Mikkí er nokkuð heilsuhraust að mati dýralækna. Búið er að taka hana úr sambandi eða ...
Hexia er þrílit, fullorðin læða sem ekki er búið að taka úr sambandi. Hún fannst á heimili fólks í Kópavogi en komið var með hana á Dýraspítalann í Garðabæ. Það fer ekki mikið fyrir Hexiu og hún getur verið svolítið feimin svo að rólegt heimili, þar sem hún fengi að njóta sín, myndi sennilega henta ...
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






