Heim » Dýrin » Kettir
Pétur

Vegna breyttra heimilis astæðna þarf Pétur að finna nýtt heimili. Pétur er rúmlega eins árs gamall fress sem er búinn að vera í minni umsá síðan hann var lítill kettlingur. Hann er mikill orkubolti og verður að fá að fara út, það er mikill leikur í honum og á hann það til að bíta en ...

Brandur

Brandur er ljúfasti katta mikil gælu róa snyrtilegur 100% inni köttur verð að láta hann frá mér vegna breyttra aðstæðna ef það einkver sem getur tekið Brand í fóstur fyrir mig þá er sá besta manneskja í heimi

Tvær systur

Systurnar Hamstur og Aska eru fæddar 30. maí. Þær eru mjög fallegar, blíðar og góðar. Kassavanar og algjörar kelurófur. Þær eru vanar börnum og hundum. Fjölskyldan er að flytja af landi brott um mánaðamótin og vill endilega að þær fái heimili fyrir þann tíma.

Mabel

Vegna ofnæmis unglingsins á heimilinu þurfum við að gefa frá okkur nýja kettlinginn okkar sem er 12 vikna á gott heimili. Hún er blíð, kelin og kassavön. Hún er mjög barngóð en drengirnir okkar 2 og 3 ára fá að halda á henni og hún leikur mikið við þá. Hún er ekki vælin og er ...

11 vikna kettlingar á Austurlandi

Þrír fallegir kettlingar, tvær yrjóttar læður og gulur og hvítur högni, leita að góðu framtíðarheimili. Fæddust á kosninganótt þann 29. maí sl. og eru því orðnir 11 vikna gamlir. Eru kassavanir og dugleg að leika sér. Á heimilinu eru þegar fyrir tveir kettir og hundur og viljum gjarnan að góð heimili finnist fyrir kettlingana. Matardallar ...

6 loðnir kettlingar fæddir 20. júní

Er með 6 sæta kettlinga sem fæddust 20. júní síðastliðið og vantar heimili. Þetta eru fjórar læður og tveir högnar. Móðirn er af skógarkyni, afskaplega blíð og skemmtileg. Kettlingarnir virðast allir ætla að verða nokkuð loðnir, þeir eru orðnir kassavanir og tilbúnir að komast á ný heimili fljótlega svo ekki þurfi að lóga þeim. Hægt ...

Katrín Randalína ("Kisa")

Þrílit, tæplega 2ja ára læða leitar nýs heimilis vegna nýgreinds ofnæmis. Einnig erum við að flytja út um áramótin og viljum gjarnan að hún fái gott heimili. Hún hefur að mestu verið inniköttur. Fékk um tíma að fara út í garð í bandi þegar við bjuggum á gamla staðnum en hér eru svalir sem henni ...

Hófí

Vegna breyttra heimilis aðstæðna þarf Hófi að finna sér nýtt heimili. Hófí er þriggja ára gömul læða sem er búin að vera í minni umsjá í eitt og hálft ár. Hún er ofsalega kelin og blíð og góð en hún leitast eftir því sjálf. Það er ekki hægt að taka hana upp nema hún komi ...

Getur þú séð dýri í neyð fyrir fósturheimili þar til framtíðarheimili finnst?

Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.

Gerast meðlimur

Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.

Sjálfboðastarf

Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.

Áttu dýradót/fóður sem getur nýst Dýrahjálp Íslands?

Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.

Skrá dýr í heimilisleit

Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.

Skrá týnt dýr

Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.

Skrá fundið dýr

Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.