Heim » Dýrin » Kettir » KitKat
uploads/kitkat_20120124T224443_1.jpg uploads/kitkat_20120124T224443_2.jpg

Zoom Smelltu á myndirnar til að stækka þær

Staðsetning: Akureyri

Aldur: 3 ára

Skráð dags: 24 Jan 2012

Senda á vin Senda á vin

Senda á Facebook Senda á Facebook

KitKat

Ég þarf að finna heimili fyrir kisuna mína og það strax.. Ég er að flytja til útlanda og því miður getur enginn sem ég þekki tekið hana að sér. Hún er að verða 3ja ára og það fylgir ALLT með henni þ.e.a.s. matar-og vatnsdallar, matur, búr, rúm, klórustandur, kattarklósett og sandur, smá leikföng og ól. Hún er loðin en nýbúið að raka hana, hún er skógarkattarblanda og er rauðhærð, búið að taka hana úr sambandi, Mjög góð og elskar að kúra, fer út en oftast stutt í einu, finnst gott að fá að sofa uppí rúmi og er ekki mjög vel við hunda.

Vön börnum:

Vön köttum:

Vön hundum:

Vön öðrum: Hún hefur verið með öðrum köttum, hundum og kanínum þegar hún var kettlingur. Henni finnst best að vera eina dýrið á heimilinu en hefur nýlega verið með einum kettlingi og tveimur hundum en er ein eins og er.

Heilsufar: Hún er með fiskiofnæmi eins og flest allir kettir, matur úr bónus fer mjög illa í hana, hún verður veik ef hún fær ekki góðann mat. Henni finnst gott að drekka vatn úr fiskabúri en lætur fiskinn alveg eiga sig.

Bólusett

Geld:

Fylgir: Rúm/bæli, matardallar, matur, klósett, sandur, klórustandur, kattarklippur, búr, ól og leikföng.

Aðrar upplýsingar:

Hún elskar að láta dekra við sig en ekki að fara í bað, finnst búr leiðinleg en elskar að liggja uppí rúmi og helst alveg ofaní manni :)
Hún fer í fýlu ef þú ferð í ferðalög í smá tíma of hittir hana ekki í nokkra daga en er mjög fljót að gleyma því, sérstaklega ef þú gefur henni nammi, elskar að drekka úr fiskabúri.

Getur þú séð dýri í neyð fyrir fósturheimili þar til framtíðarheimili finnst?

Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.

Gerast meðlimur

Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.

Sjálfboðastarf

Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.

Áttu dýradót/fóður sem getur nýst Dýrahjálp Íslands?

Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.

Skrá dýr í heimilisleit

Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.

Skrá týnt dýr

Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.

Skrá fundið dýr

Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.