Díana
Mjög falleg og góð læða.
Hún var geld þegar hún var 6 mánaða og hefur alltaf verið mjög heilsuhraust. Er búin að fá allar sprautur en fer að koma að því að hún þurfi að fara í sína árlegu skoðun.
Hún er útikisa en hefur verið innikisa í allan vetur því hún fýlar ekki þennan snjó. Húsvön og mjög snirtileg.
Hún þarf því miður að komast á nýtt heimili sem fyrst því strákarnir mínir sem eru 2 og 4 ára eru með mikið exem og versna af kattahárunum, og nú er það orðið það slæmt að kremin virka ekki lengur á þá. Það eru 2 hundar á heimilinu en samkvæmt ofnæmisprófum þola þeir hárin af þeim.
Hún er vön börnum, hundum og öðrum köttum en finnst ekkert af þessu sérstaklega skemmtilegt samt þó hún láti sig alveg hafa það þegar krakkar eru að hnoðast í henni. Hún er mjög blíð og góð en vill eiga frumkvæðið af keleríi og knúsi.
Hún er algjör prinsessa og vill helst drekka úr baðvaskinum og láta spjalla við sig ;)
Það er mjög leiðinlegt að þurfa að láta hana fara, en ég vil frekar að hún fái gott heimili heldur en að þurfa að hafa hana lokaða inni allan daginn.
Vön börnum: Já
Vön köttum: Já
Vön hundum: Já
Heilsufar: Mjög heilsuhraust hingað til.
Bólusett Já
Geld: Já
Skráð: Já
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






