Snælda
Mjög falleg þrílit læða, 3já ára, blíð, gæf og góð. Örmerkt og búið að taka úr sambandi, hefur farið í allar sprautur og allt eins og á að vera. Vön börnum og býr með annarri kisu sem er líka gefins. Hefur átt kettlinga einu sinni. Góður veiðiköttur og ætti frekar heima í sveit heldur en í borg. Kemur úr sveit. Eða hjá fólki sem er ekki að æsa sig út að veiðieðlinu. Finnst gott að láta klappar sér og gæla við sig en vill ekki láta hnoðast með sig. Laumar sér út þegar gestir eru. Vön börnum og hefur aldrei klórað eða annað og mín börn hafa fengið að hnoðast með hana fram og til baka. Svolítið þétt og pattaraleg. Borðar allt, vön þurmat en finnst venjulegur matur betri.
Vön börnum: Já
Vön köttum: Já
Vön hundum: Já
Vön öðrum: Hefur búið með hundum, hélt sig þá bara meira úti. En var ekkert að farast úr stressi.
Heilsufar: Gott, aldrei veikst, farið í allar sprautur. Ormahreinsuð og annað.
Bólusett Já
Geld: Já
Skráð: Já
Fylgir: Kattasandur og matur getur fylgt.
Aðrar upplýsingar:
Kann að nota kassa en gerir þarfir sínar frekar úti.
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






