Litla kisa
Sérstaklega falleg þrílit læða, aðallega hvít. Nett og fíngerð. Einstaklega blíð, gæf og góð. Vill endalaust vera í fangi og láta klappa sér og knúsa. Þrifin og kvennleg, Upp er komið ofnæmi og því þarf kisa að finna nýtt heimili. Það er ekki búið að gelda hana, merkja né annað en hún hefur verið ormahreinsuð. Þessi kisa vill helst koma með okkur hvert sem við förum. Er svolítið eins og lítill hvolpur. Alveg frábær kisa. Hefur búið með annarri kisu og það hefur bara gengið mjög vel. Tókum þessa að okkur á sínum tíma og áttum þá aðra kisu. Eins hefur hún búið með hundi og fannst það lítið mál. Flott kisa sem ég vona að einhver vilji eiga.
Vön börnum: Já
Vön köttum: Já
Vön hundum: Já
Vön öðrum: Páfagaukur á heimilinu. Ekkert mál. Bjó um tíma með hundi og var ekki hrifin en allt í lagi.
Heilsufar: Flott
Fylgir: Kattarsandur og matur getur fylgt.
Aðrar upplýsingar:
Frábær og alveg einstaklega falleg og góð kisa.
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






