Gullfallegar læður, 3ja og tæplega 1 árs gefins
Gullfallegar læður, 3ja og tæplega 1 árs gefins
Er með 2 læður, þrílitar og gullfallegar, búið er að taka þá eldri úr sambandi, örmerkja og ormahreinsa. Sú eldri á það til að veiða fugla og mýs, er reyndar flottasti veiðiköttur, þær koma báðar úr sveit. Upp er komið ofnæmi í fjölskyldunni og þess vegna leita ég að nýju heimili fyrir dömurnar. Þetta eru einstaklega blíðar og góðar kisur, vanar börnum og barn elskar. Þeim finnst gott að láta klappa sér en kannski ekki allt of mikið. Eru svolítið eins og hvolpar, fylgja börnunum mínum alltaf í skólann og vita hvenær þau koma heim. Bíða spenntar eftir þeim, taka á móti þeim og eiga það til að labba áleiðis að skólanum til að sækja þau. Við erum líka með páfagauk sem þær láta alveg í friði. Höfum verið með hund í pössun öðruhvoru og marga daga í senn og það hefur gengið prýðilega. Þetta eru ekki mæðgur en ágætar vinkonur og þurfa ekki að fara á sama heimilið. Sérstaklega fallegar og flottar kisur sem ég vil helst ekki þurfa að svæfa. Vonandi er einhver sem er til í aðra eða báðar.
Vön börnum: Já
Vön köttum: Já
Vön hundum: Nei
Vön öðrum: páfagaukum
Heilsufar: gott
Bólusett Já
Geld: Já
Skráð: Já
Fylgir: Matur fyrir báðar, kattarsandur fyrir báðar og 2 körfur. 2000,- kr fyrir hvora til að kaupa það sem vantar.
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






