Tyson
Tyson er 4 mánaða ofurtöffari. Hann er algjört kúrudýr og vill alltaf sofa upp við hálsinn á mér og malar endalaust. Hann er samt líka rosalega fjörugur og getur fundið sér furðulegustu hluti til að leika sér með, honum finnst til dæmis geðveikt gaman að leika sér í baði og ofan í vaski að busla í vatni :p Hann hefur verið inniköttur síðan ég fékk hann en ég veit að honum dauðlangar að komast út en ég hef bara því miður ekki aðstæðu til þess og ég vorkenni honum alveg hrikalega mikið og vill þess vegna finna heimili handa honum þar sem hann kemst út.
Vanur börnum: Nei
Vanur köttum: Nei
Vanur hundum: Nei
Vanur öðrum: Hann hefur hitt hunda og lét það ekkert á sig fá.
Heilsufar: Hraustur í alla staði en það þarf að bólusetja hann
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






