Dídí
yndisleg og kelin læða þarfnast nýs heimilis vegna flutninga og barneigna, hún er marglituð en mest dökk með allskyns brúnum og hvítum litum í.
Hún er tiltölulega nýbúin að eignast 6 kettlinga (9 ágúst) og var það algjört slys. Allir kettlingarnir heilbrigðir og hraustir.
Hún er mjög leikin og á það til þegar maður hendir dótinu hennar að koma með það til baka, hún hlíðir nánast alltaf Nei-i þegar hún er uppá borðum eða einhversstaðar sem hún á ekki að vera.
Yndisleg kisa sem verður sárt saknað og erfitt verður að láta hana frá sér.
Vön börnum: Já
Vön köttum: Já
Vön hundum: Já
Heilsufar: Hún hefur einu sinni fengið einhverskonar snýkjudýr og fékk meðal og sprautur við því sem jafnaði sig fljótlega. Annars er allt í góðu standi hjá henni heilsufarslega séð.
Bólusett Já
Skráð: Já
Fylgir: Matardallar, kattaról og einhver leikföng og klórustandur
Aðrar upplýsingar:
Getur verið svolítill spjallari en hættir fljótlega þegar maður talar við hana á móti, ef hent er dótinu hennar kemur hún yfirleitt alltaf með það til baka til manns, hlýðir þegar maður segir Nei og niður, finst rosalega gott að sofa uppí og þá helst á koddanum en er ekki vön að fá að sofa upp í rúmi.
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






