Lína og Bella
Lína og Bella eru yndislegar fimm mánaða læður. Þær fæddust 29.mars síðastliðinn. Mamman, sem er norsk/íslensk, eignaðist fimm kettlinga með íslenskum prakkara áður en náðst hafði að taka hana úr sambandi. Nú er það búið en ekki hefur tekist að koma tveimur kettlingunum út. Lína er önnur þeirra sem eftir eru. Hún er svört og hvít, gullfalleg, barngóð og afar blíð. Við búum í fjölbýli og höfum leyfi fyrir einni kisu en nágrannarnir vilja ekki fleiri í húsið. Við erum því í vandræðum.
Vön börnum: Já
Vön köttum: Já
Vön hundum: Nei
Heilsufar: Hún fær líka að fara út. Heilsufar mjög gott.
Fylgir: Matarbyrgðir fylgja (7kg. poki).
Aðrar upplýsingar:
Lína og Bella eru sérstaklega hlýjar og sækja mikið í félagsskap.
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






