Pétur
Vegna breyttra heimilis astæðna þarf Pétur að finna nýtt heimili.
Pétur er rúmlega eins árs gamall fress sem er búinn að vera í minni umsá síðan hann var lítill kettlingur. Hann er mikill orkubolti og verður að fá að fara út, það er mikill leikur í honum og á hann það til að bíta en það yfirleitta bara í hita leiksins. Hann er vanur öðrum köttum og er læðan Hófí búin að passa hann síðan hann var kettlingur.
Pétur þyrfti helst að komast á heimili þar sem að hann er kóngurinn á heimilinu, hann er frekur og veður yfir læðurnar á heimilinu.
Sveit væri fullkomið umhverfi fyrir hann en það getur verið erfitt að finna slíkt heimili.
Vanur börnum: Já
Vanur köttum: Já
Vanur hundum: Nei
Bólusettur Já
Geldur: Já
Skráður: Já
Fylgir: Matardallur og kisuklíóra
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






