Mabel
Vegna ofnæmis unglingsins á heimilinu þurfum við að gefa frá okkur nýja kettlinginn okkar sem er 12 vikna á gott heimili. Hún er blíð, kelin og kassavön. Hún er mjög barngóð en drengirnir okkar 2 og 3 ára fá að halda á henni og hún leikur mikið við þá.
Hún er ekki vælin og er mikill vinur okkar. Hennar verður sárt saknað af okkur öllum.
Vön börnum: Já
Vön köttum: Já
Vön hundum: Nei
Heilsufar: Gott
Fylgir: Bleik kattaról, busti, skófla og matur
Aðrar upplýsingar:
Róleg og góður kettlingur sem finnst gott að vera innan um börn sem og að kúra upp í sófa.
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






