Heim » Dýrin » Kettir » Katrín Randalína ("Kisa")
uploads/katrin-randalina-kisa_20100814T122137_1.JPG uploads/katrin-randalina-kisa_20100814T122137_2.JPG uploads/katrin-randalina-kisa_20100814T122137_3.JPG uploads/katrin-randalina-kisa_20100814T122137_4.JPG

Zoom Smelltu á myndirnar til að stækka þær

Staðsetning: Akureyri

Aldur: 2 ára

Skráð dags: 14 Ágú 2010

Senda á vin Senda á vin

Senda á Facebook Senda á Facebook

Katrín Randalína ("Kisa")

Þrílit, tæplega 2ja ára læða leitar nýs heimilis vegna nýgreinds ofnæmis. Einnig erum við að flytja út um áramótin og viljum gjarnan að hún fái gott heimili.

Hún hefur að mestu verið inniköttur. Fékk um tíma að fara út í garð í bandi þegar við bjuggum á gamla staðnum en hér eru svalir sem henni finnst gott að fara út á.

Hún er fjörug og finnst gaman þegar leikið er við hana. Finnst gott að vera nálægt manni og kúrir oft í seilingarfjarlægð.

Hún er geld, eyrnamerkt og gerir þarfir sínar eingöngu í kassann sinn.

Yndisleg kisa sem okkur finnst leiðinlegt að þurfa að láta frá okkur, vonum innilega að einhver gefi henni gott heimili.

Vön börnum: Nei

Vön köttum: Nei

Vön hundum: Nei

Heilsufar: Heilsuhraust, aldrei fengið orma.

Bólusett

Geld:

Skráð:

Fylgir: Ferðabúr og matardallar fylgja með.

Aðrar upplýsingar:

Getum komið með kisu út á land ef þess þarf.

Getur þú séð dýri í neyð fyrir fósturheimili þar til framtíðarheimili finnst?

Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.

Gerast meðlimur

Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.

Sjálfboðastarf

Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.

Áttu dýradót/fóður sem getur nýst Dýrahjálp Íslands?

Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.

Skrá dýr í heimilisleit

Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.

Skrá týnt dýr

Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.

Skrá fundið dýr

Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.