Hófí
Vegna breyttra heimilis aðstæðna þarf Hófi að finna sér nýtt heimili.
Hófí er þriggja ára gömul læða sem er búin að vera í minni umsjá í eitt og hálft ár. Hún er ofsalega kelin og blíð og góð en hún leitast eftir því sjálf. Það er ekki hægt að taka hana upp nema hún komi til manns. Hún er góður félagi og það fer lítið fyrir henni. Það er yndislegt þegar hún kemur uppúr þurru og sest í fangið á manni og vill láta kela við sig. Hún er útiköttur en fer sjaldan langt frá heimili sínu. Hún er vön öðrum köttum og hefur passað uppá Pétur í rúmt ár, eða frá því að hann var kettlingur.
Hófí er örmerkt og geld, með henni fylgir matardallur og smá dót.
Vön börnum: Já
Vön köttum: Já
Bólusett Já
Geld: Já
Skráð: Já
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






