Gríma Rós
Fallega rósótt læða, Háfætt og grönn.
Mjög falleg og skemmtileg, hlíðir kalli.
Ef maður kallar "Gríma" , kemur hún hlaupandi,
og hún biður mann um að opna hurðina inn til hennar. Þar er bælið og maturinn :)
Hún labbar með manni úti, fylgir manni út á leikskóla. Er eins og hundur :)
Ef tekið er í loppuna á henni sest hún niður, eins og voffi . Æðislega góð, er ekki að klóra , né hvæsa, klórar ekki í húsgögn.
Skemmir aldrei neitt.
Bara perfect í alla staði. Er alveg húshrein.
Vön börnum: Já
Vön köttum: Já
Vön hundum: Já
Vön öðrum: Naggrísum og hundum.
Heilsufar: Hefur einusinni orðið slöpp og lasin, fyrir 2 árum.Hún svaf og hvíldi sig mikið í 1 viku. Annars alveg hraust. Var eflaust með hvef og flensu.
Geld: Já
Skráð: Já
Fylgir: Kattaklóra, matardallur, og kisuhanski , til að greiða henni með.(en það hefur aldrei þurft að nota hanskann á hana, hún fer ekki úr hárum.)
Aðrar upplýsingar:
Kisa er mjög skemmtileg , eltir mann og talar við mann . Elskar harðfisk, og sardínur í tómatsósu. Er góð og ljúf.
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






