Tommi
Tommi minn er að leita að nýju heimili vegna breyttra heimilisaðstæðna.
Hann er blindur og er því inniköttur en fær að fara út á svalir. Hann er algjört kúrudýr og sækir mjög mikið í félagskap mannfólksins. Hann er vanur börnum á öllum aldri. Tommi er að sjálfsögðu örmerktur og geldur og með honum fylgir t.d. rúm, matarskálar og lokaður klósettkassi.
Tommi er yndislegur köttur og hans verður sárt saknað. Hann er kelinn, rólegur og hinn besti félagsskapur.
Vanur börnum: Já
Vanur köttum: Nei
Vanur hundum: Já
Vanur öðrum: Tommi er inniköttur og eina dýrið á heimilinu, en hann kippir sér ekki upp við það þegar önnur dýr (hundar) koma í heimsókn með eigendum sínum.
Heilsufar: Tommi er blindur eftir að keyrt var á hann fyrir nokkrum árum. Að öðru leyti er hann mjög heilsuhraustur.
Bólusettur Já
Geldur: Já
Skráður: Já
Fylgir: Með Tomma fylgir m.a. matardallar, leikföng, búr, klósett, rúm.
Aðrar upplýsingar:
Tommi er mjög kelinn og finnst fátt betra en að kúra, hann á það líka til að setjast hjá manni og "spjalla". Hann hefur farið nokkru sinnum í pössun og það hefur aldrei verið neitt vesen, hann er fljótur að aðlagast og er hvers manns hugljúfi.
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






