Pæja
Vegna ofnæmis verðum við því miður að láta hana Pæju okkar frá okkur. Við höfðum velt því fyrir okkur að láta lóga henni en við getum ekki hugsað okkur að svona ljúfri og góðri kisu yrði bara lógað svo við ætlum að reyna okkar besta að finna fyrir hana nýtt heimili.
Pæja er blind og með beyglað og stutt skott. Það þýðir að jafnvægisskynið er ekki upp á sitt besta og hún þarf að vera inni öllum stundum. Henni finnst samt rosalega gott að komast út stöku sinnum.
Hún er alveg ótúlega kelin og góð og finnst ekkert betra en að láta klóra sér á maganum.
Hún yrði líka örugglega æðisleg fyrir fólk með börn, sem nenna að kjassa og knúsa hana.
Vön börnum: Já
Vön köttum: Nei
Vön hundum: Nei
Vön öðrum: Hún hefur ekki hitt aðra ketti svo ég viti til, en hún er ágæt með hundum og mjög barngóð, enda myndi hún aldrei klóra eða bíta frá sér.
Heilsufar: Hún er við fína heilsu fyrir utan að vera blind, kiðfætt og með beyglað skott.
Bólusett Já
Geld: Já
Skráð: Já
Fylgir: Allt. Matardallar, klórugrind, kisukarfa með hurð, plastkisubúr (undir kattasand), skóflur til að hreinsa sandinn, hálsól og mús.
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






