Mía
Gullfalleg læða sem bráðvantar heimili , átti að svæfa hana að sökum ofnæmis en ég ákvað að gefa henni aðeins lengri sjens á að komast á gott framtíðar heimili :)
Hún er alveg rosalega kelin og góð, elskar að knúsast og að leika sér. Hún er blönduð af Siams og sennilega bara venjulegum ketti. Hún er á Akureyri en ekkert mál að koma henni annað ef heimili bíðst :)
Vön börnum: Já
Vön köttum: Nei
Vön hundum: Nei
Vön öðrum: Ég veit ekki alveg hvernig hún er með öðrum dýrum, hingað til hef ég séð hana urra á aðra ketti þegar hún sér þá , en hún er með kettlingana sína ennþá hjá sér (3mán) svo ég veit ekki hvort það sé að hún sé að passa þá eða bara illa við aðra ketti. En hunda er henni mein illa við.
Heilsufar: Mér sínist að öllu að hún sé heilsuhraust og flottur köttur. Dýralæknir skoðaði hana um dagin og hafði ekkert útá hana að setja :)
Bólusett Já
Aðrar upplýsingar:
Hún er yndisleg og blíð kisa sem er samt alltaf til í að leika og dauðlangar að komast á nýtt framtíðarheimili.
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






