Emma og Embla
Þær komu ásamt mömmu sinni sem átti að lóga, gat ekki hugsað mér að láta þessar gullfallegu og skemmtilegu kolamola fara yfir móðuna miklu án þess að fá sjens á að finna nýtt heimili. Þær eru rétt um 3 mánaða og mamman er Siams blönduð svo það er siams í þeim líka, þær eru með stóru sperrtu eyrun og risa augun frá þeim :) Þær eru gullfallegar og alltaf til í leik en elska líka að fá knús :)
Við vorum að komast að því að litlu snúllurnar eru víst högnar ekki læður!
Vön börnum: Já
Vön köttum: Nei
Vön hundum: Nei
Vön öðrum: Þær eru ekki vanar öðrum dýrum, nema mömmu sinni svo það er nú valla hægt að telja það með :) En þær eru enn ungar svo ekkert mál að venja þær við :)
Heilsufar: Hingað til hefur það verið mjög gott ekki borið á neinu. Eru búnar að fá ormalyf en ekki sprautu. Emma er reyndar með pínu naflaslit sem ætti ekki að hrjá henni neitt og gæti gengið til baka að sögn dýralæknis :)
Aðrar upplýsingar:
Yndislegar skellibjöllur sem vantar að komast í burtu frá mömmu :)
Ekkert mál að koma litlu skvísunum útá land ef þess er óskað :)
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






