Gríma
Gríma er tæplega 3 mánaða læða sem vatnar gott framtíðarheimili.
Afskaplega ljúf og góð kisustelpa sem er orðin kassavön.
Vön börnum: Já
Vön köttum: Já
Vön hundum: Nei
Vön öðrum: Gríma býr með bræðum sínum, mömmu og ömmu svo hún er vön öðrum kisum.
Heilsufar: Gríma er hraust kisa
Aðrar upplýsingar:
Gríma er ljúf lítil kisa sem finnst óskaplega gaman að leika við bræður sína og heimilisfólkið.
Hún er forvitin um flest allt og fylgist vel með öllu sem gerist á heimilinu!
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






