2 Kettlinga vantar heimili
Erum með tvo kettlinga sem bráðvantar heimili. Einn högna og eina læðu.
Þurfa heimili sem fyrst þar sem við erum með 5 ketti á heimilinu einsog er og við höfum enga aðstöðu til þess.
Vanur börnum: Nei
Vanur köttum: Já
Vanur hundum: Nei
Vanur öðrum: Þau eru bæði vön öðrum köttum. Fullorðnum og kettlingum.
Heilsufar: Þau eru bæði við góða heilsu. Högninn er hinsvegar með einhverskonar naflaslit sem hann virðist ekkert finna fyrir. Þau hafa ekki fengið ormatöflur en það verður gert.
Aðrar upplýsingar:
Högninn er mjög kelinn og malar mikið, það er mikill leikur í honum og hann er voða mikill persónuleiki. Gæti alveg trúað að hann myndi henta á annaðhvort einstaklingsheimili eða með fjölskyldu. Þessvegna með öðrum dýrum, allavega köttum.
Læðan er svolítið feimin enþá. Hún berst ekki á móti að láta halda á sér en þarf smá tíma til að venjast fólki. Gæti trúað að það væri best fyrir hana að fara á rólegt heimili þar sem henni væri gefinn góður tími að venjast. Gætu alveg verið kettir á heimilinu fyrir.
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






