Nyx
Ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja, þetta er alveg yndislegur köttur. Hún er rúmlega 3 ára gömul og er búin að eignast kettlinga og er búið að taka hana úr sambandi.
Hún er inniköttur, kassavön og hún skemmir ekki húsgögn, hún notar svona mottu til að klóra og ef sú motta er ekki til staðar þá gæti hún klórað í aðra hluti eins og sófa eða stóla.
Hún er mjög vinaleg en algjör skræfa, henni bregður oft svo best er að nálgast hana rólega. Einnig finnst henni mjög óþægilegt að láta halda á sér. Ef það eru margir aðilar á heimilinu á hún örugglega eftir að velja sér einn "eigenda" eða vin sem hún eltir út um allt hús, en ef þú lumar á harðfisk þá kemur hún eins og skot :).
Hún er mjög lítill og því ekki mjög dýr í rekstri, hún lifir aðallega á þurrmat og vatni en finnst mjög gott að fá blautmat kannski 2-3 hvern dag, þó engin nauðsyn.
Allt mun fylgja með þessum ketti og má þá nefna kattarmat, kattsandbox + skófla, búr fyrir flutning, klórustöng, 2x klórumottur og fleiri smáhlutir.
Vön börnum: Nei
Vön köttum: Já
Vön öðrum: Ég er ekki viss með önnur dýr, hún var á Kattholti í mjög langan tíma og er vön öðrum köttum en með hunda og annað er ég ekki viss.
Heilsufar: Hún er í mjög góðu formi og fór síðast í sprautun núna í vor. Bók fylgir um hvenær hún eigi að fara í sprautu næst og svo framvegis.
Bólusett Já
Geld: Já
Skráð: Já
Fylgir: Allt mun fylgja með þessum ketti og má þá nefna kattarmat, kattsandbox + skófla, búr fyrir flutning, klórustöng, 2x klórumottur og fleiri smáhlutir.
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






