Sprettur, Nettur, Gjóska og Kvika
4 þriggja mánaða kettlingar óska eftir heimili.
Sprettur fékk nafnið þar sem hann byrjaði á því að hlaupa en ekki labba, það kom seinna :) Hann er rosalega kelinn og vill helst alltaf vera hjá fólki. Ef börn koma í heimsókn þá lætur hann alveg tuskast með sig.
Nettur fékk sitt nafn þar sem það rímaði við Sprettur. Hann er bara alveg eins og bróðir hans.
Gjóska er þessi sæta og fína en samt rosa fjörug og kelinn þegar hentar henni.
Kvika er svolið kvik.. en leyni kelinn, vill hafa fólk útaf fyrir sig.
Allir kettlingarnir er kassavanir og aldrei hefur komið neitt slys fyrir hjá þeim. Þeir eru allir gráir og hvítir, algjörlega sætastir í heimi.
Vanur börnum: Nei
Vanur köttum: Já
Vanur hundum: Nei
Aðrar upplýsingar:
Það koma oft börn í heimsókn og allir láta mjög vel að þeim.
Þeir komast út en gætu alveg verið bara inni ef þess er að skipta.
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






