Lísa
Lísa er yndisleg kisa sem er mikil félagsvera og mikið fyrir að kúra.
Eigendurnir voru að eignast lítið barn og geta ekki sinnt Lísu sem skyldi. Lísa er einnig hrædd við börn og flýr alltaf heimilið þegar litli sex ára strákurinn kemur til okkar aðra hvora helgi.
Annar eigandinn er einnig með ofnæmi sem fer versnandi og háir honum mjög mikið.
Lísu vantar heimili þar sem hún kemst út og inn eins og henni sýnist og þar sem hún getur fengið næga ást.
Betra væri ef það væru engin börn á heimilinu þar sem hún er rosalega hrædd við þau.
Vön börnum: Nei
Vön köttum: Nei
Vön hundum: Nei
Vön öðrum: Nei, hún hefur aldrei verið í kringum önnur dýr.
Heilsufar: Hraust kisa. Erum með bók frá skoðunum og bólusetningum.
Bólusett Já
Geld: Já
Skráð: Já
Fylgir: Matardallur og teppi.
Aðrar upplýsingar:
Ég talaði um áðan hvað hún er ótrúlega kelin og mikil félagsvera. Þarf mikla ást.
Hún vill alls ekki láta halda á sér, en um leið og maður sest þá kemur hún og vill kúra.
Hún þekkir nafnið sitt en maður verður að segja það á ákveðinn hátt.
Lísa er ótrúlega góð og indæl og myndi aldrei vera vond við neinn.
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






