Lady og kettlingarnir hennar
Lady er svört frekar egifsk í útliti, lítil og sæt, henni og kettlingunum hennar fjórum sárvantar nýtt heimili vegna þess að eigandinn er fluttur erlendis, kettlingarnir eru kassavanir, fjörugir og sprækir 2 læður og 2 högnar, ca 2 mánaða.
Fyrir á heimilinu eru nú þegar 2 kettir og 2 hundar svo Lady litlu og kettlingunum er svolítið ofaukið,valdajafnvægið á heimilinu hefur aðeins raskast við þessa viðbót.
Vön börnum: Já
Vön köttum: Já
Vön hundum: Já
Heilsufar: allir eru heilsuhraustir
Aðrar upplýsingar:
Ég veit voðalega lítið um dýrin vegna þess að eigandinn er erlendis þau komu til min í gegnum son minn. Öll eru þau þrifaleg og blíð kelin og góð.
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






