Mikkí
Mikkí er 2-4 ára gömul svört læða sem býr á fósturheimili Dýrahjálpar. Hún hefur búið hér í nærri 4 vikur og líkar ágætlega.
Hún er ljúf og góð en mjög kvekkt og hræðist skyndileg hljóð og hreyfingar.
Hún hefur átt kettlinga en síðasti fór á nýtt heimili fyrir 4 vikum.
Mikkí er nokkuð heilsuhraust að mati dýralækna. Búið er að taka hana úr sambandi eða taka úr henni legið en hún fékk miklar sýkingar í kjölfar þess að eignast kettlingana. Hún er eyrnamerkt.
Mikkí óskar sér eftir nýju heimili þar sem hún gæti mögulega farið út í garð. Ekki er vitað um hvaðan hún kemur en hún er alveg kassavön.
Hún borðar íslenskt þurrfóður og er mikið fyrir að borða :-) Hún er líka sérvitur eins og margir kettir og finnst bara brauð og rúsínur ágætis blanda :)
Vön hundum: Nei
Vön öðrum: ekki verið í kringum önnur dýr á fósturheimilinu
Heilsufar: Hraust. Búið að taka legið og eyrnamerkja. Ekki vitað hvort hún hafi fengið sprautu eða verið ormahreinsuð. Er ekki með heilsufarsbók.
Geld: Já
Skráð: Já
Fylgir: Ekkert því miður - þó smá matur til
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






