Dreki og Bolti
Tveir 4 mánaða hvolpar sem eru undan BorderCollie hundi og tík sem er að mestu BC en með smá Íslenskt í sér.
Vanur börnum: Já
Vanur köttum: Nei
Vanur hundum: Já
Vanur öðrum: Kindum og fuglum
Aðrar upplýsingar:
Þetta eru hvolpar undan virkum vinnuhundum og annar þeirra (Dreki) er ögn virkari en hinn og væri því hentugur sem vinnu/leitarhundur eða þar sem hann fær næga hreyfingu. Hinn (Bolti) er mun rólegri og þarf minni hreyfingu en bróðir sinn. Báðir mjög skarpir og fljótir að læra
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






