Zara
Blanda af bordercollie og íslenskum.Alveg yndisleg í alla staði vön börnum og tveim kisum.Hún er fimm ára og þarf að fara því eigandi hefur ekki mikinn tíma í að sinna þörfum hennar sökum veikinda og skóla. Hún er mjög klár kann alla mannasiði og er hlýðin. Henni finnst mjög gaman í bíl og gæti verið þar klukkutímunum saman. Hún er mjög fjörug og hennar verður sárt saknað. Ef nýji eigandinn getur ekki hugsað um hana vil ég fá hana aftur því það má alls ekki lóga henni.
Vön börnum: Já
Vön köttum: Já
Vön hundum: Nei
Vön öðrum: hún er miðlungs vön hundum það eru aðrir hundar í fjölskyldunni sem hún hefur umgengst en það tekur hana tíma í að aðlagast öðrum hundum þar sem hún á til með að vera árásargjörn á aðra hunda.
Heilsufar: Það er búið að taka hana úr sambandi bólusetja og ormahreinsa á hverju ári og þófar og klær og annað er í lagi.
Bólusett Já
Geld: Já
Skráð: Já
Fylgir: hundabúr og taumur og ól, leikföng busti
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






