Hetja
Hetja er rúmlega eins árs tík af þrí blönduðu kyni. Hún er blanda af Border Collie, Labrador og Terrier. Hún fer ekki mikið úr hárum og einsstaklega skemmtilegur hundur. Hún hefur ekki farið á nein námskeið og þarfnast aðila sem getur gefið henni smá tíma. Ástæða fyrir brottfluttningi er vegna tímaleysi á heimili. Hún er vön köttur og vill leika við þá enda er hún á heimili þar sem annar hundur og einn köttur er.
Vön börnum: Já
Vön köttum: Já
Vön hundum: Já
Vön öðrum: Hún á til að rífa kjaft eins og við köllum það en gerir það bara úr fjarlægð vegna þess að hún vill fá að heilsa uppá aðra hunda.
Heilsufar: Það er ný búið að gelda hana og hún hefur farið í allar skoðanir sem hundi sæmir. Hún er örmerkt. Heilsuhraust af lífi og sál.
Bólusett Já
Geld: Já
Skráð: Já
Fylgir: Lítið hundabæli, ól með merki og taumur getur fylgt með. Dallar ef fólk vill.
Aðrar upplýsingar:
Hún á til með að naga reimar af skóm og fara í plastdót sem á gólfi liggur en gerir það eingöngu þegar hún hefur ekki farið í sínar venjulegar göngur og er ekki með einhvert dót... gott að hafa dót hjá henni enda er hun bara eins árs gömul.
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






