Við erum tvær systur sem vantar gott heimili. Því ekki er pláss fyrir okkur á heimilinu því þar búa mamma okkar og systir hennar.
Gullfalleg læða sem bráðvantar heimili , átti að svæfa hana að sökum ofnæmis en ég ákvað að gefa henni aðeins lengri sjens á að komast á gott framtíðar heimili :) Hún er alveg rosalega kelin og góð, elskar að knúsast og að leika sér. Hún er blönduð af Siams og sennilega bara venjulegum ketti. Hún ...
Þær komu ásamt mömmu sinni sem átti að lóga, gat ekki hugsað mér að láta þessar gullfallegu og skemmtilegu kolamola fara yfir móðuna miklu án þess að fá sjens á að finna nýtt heimili. Þær eru rétt um 3 mánaða og mamman er Siams blönduð svo það er siams í þeim líka, þær eru með ...
Bráðfallegann og skemmtilegann Border Collie hund vantar heimili. Hann er afskaplega blíður en þarf mikla hreyfingu og útiveru. Spotti er 6 ára gamall og afskaplega skemmtilegur félagi. Ástæðan fyrir því að ég get ekki haft hann lengur er sú að ég hef ekki aðstöðu fyrir hann lengur og á ekki húsnæði sjálfur.
3 Litlum kettlingum vantar heimili svartir og hvítir, tvær læður og einn fress. Kassavanir, blíðir og góðir.
Erum með tvo kettlinga sem bráðvantar heimili. Einn högna og eina læðu. Þurfa heimili sem fyrst þar sem við erum með 5 ketti á heimilinu einsog er og við höfum enga aðstöðu til þess.
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






