Þrílit, tæplega 2ja ára læða leitar nýs heimilis vegna nýgreinds ofnæmis. Einnig erum við að flytja út um áramótin og viljum gjarnan að hún fái gott heimili. Hún hefur að mestu verið inniköttur. Fékk um tíma að fara út í garð í bandi þegar við bjuggum á gamla staðnum en hér eru svalir sem henni ...
Er með tvo sæta 3 mán kettlinga sem bráðnauðsynlega vantar heimili. Þetta er læður, eru kassavanar. Er sjálf með tvo ketti svo ég get ekki haft fleiri.
Fallega rósótt læða, Háfætt og grönn. Mjög falleg og skemmtileg, hlíðir kalli. Ef maður kallar "Gríma" , kemur hún hlaupandi, og hún biður mann um að opna hurðina inn til hennar. Þar er bælið og maturinn :) Hún labbar með manni úti, fylgir manni út á leikskóla. Er eins og hundur :) Ef tekið er ...
Hann er hvítur með smá svörtu í sér rosalega sætur og góður, hann elskar að leika sér og kúrir alveg endalaust er mjög athyglisjúkur og eltir mann útum allt hús þegar maður fer einhvað. Hann er einnig mjög mikill kjáni og er ekki ennþá farin að skilja þegar það er kallað á hann en það ...
Vegna ofnæmis verðum við því miður að láta hana Pæju okkar frá okkur. Við höfðum velt því fyrir okkur að láta lóga henni en við getum ekki hugsað okkur að svona ljúfri og góðri kisu yrði bara lógað svo við ætlum að reyna okkar besta að finna fyrir hana nýtt heimili. Pæja er blind og ...
Tommi minn er að leita að nýju heimili vegna breyttra heimilisaðstæðna. Hann er blindur og er því inniköttur en fær að fara út á svalir. Hann er algjört kúrudýr og sækir mjög mikið í félagskap mannfólksins. Hann er vanur börnum á öllum aldri. Tommi er að sjálfsögðu örmerktur og geldur og með honum fylgir t.d. ...
ég er með svarta og hvíta læðu rosa gæfa sem er rúmlega eins árs og grábröndóttan fress sem er geldur og er tæplega eins árs bæði ljúf og góð og þeim vantar heimili sem fyrst vegna húsnæðisvandamála Ef einhver sér sér fært á að hjálpa þeim um gott heimili þá endilega látið vita
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






