Velkomin á vefsíðu Dýrahjálpar Íslands!

Dýrahjálp Íslands er félag sjálfboðaliða sem leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli og stofna til þess dýraathvarf.

Frá stofnun félagsins í maí 2008 hefur Dýrahjálp Íslands aðstoðað alls 8,106 dýr í heimilisleit.

Mía er týnd

Mía, læða, 9 ára, örmerkt og skráð.

Útlit: Lítill norskur skógarköttur, síðhærð með þykkan og mikinn feld. Hún er grá, hvít og svört, með dökkar gráar og svartar rendur á baki og hliðum. Bringan, hálsinn og loppurnar eru hvítar, og hún er með hvítt trýni og stórt, loðið skott. Hún er frekar lítil og nett, en feldurinn lætur hana líta út fyrir að vera stærri.

Sást síðast: Heima á Melabraut á Seltjarnarnesi fimmtudaginn 22. október. Hún var úti á meðan við vorum að heiman í um tvo tíma og komst ekki aftur inn.

Hegðun: Útikisa sem heldur sig mest á pallinum heima og fer aldrei langt. Hún er hrifin af fólki en getur orðið hrædd. Hún elskar að skríða inn í poka, kassa og skápa, og við óttumst að hún hafi lokast inni í bílskúr, skúr eða geymslu í nágrenninu.

Skráð 26 Okt 2026

Upplýsingar um eiganda

Nafn: Sólveig Kristín Björgólfsdóttir

Netfang: solveig.kristin.b@gmail.com

Símanúmer: 7717551