Víkingur okkar hefur ekki sést síðan 31. ágúst, en hann hefur aldrei áður horfið í heilan dag ???? Hann er alveg grár með græn augu og ör þvert yfir trýnið. Hann er örmerktur en ekki með ól.
Hann er mannafælinn og matvandur en sísvangur þannig að hann gæti verið í felum eða læstur inni. Hann er heimakær, 9 ára kisi sem var okkur vitanlega ekki veikur. Hann á heima í Logafold, Grafarvogi, og sást þar síðast í öryggismyndavél á pallinum okkar, eins og hann er vanur að vera eða tekur á móti manni í innkeyrslunni.
Skráð 07 Sep 2026
Nafn: Margrét Jónsdóttir
Netfang: margret.jons74@gmail.com
Símanúmer: 8211647