Kisan okkar hún Sóley komst út á laugardagskvöldið 2. maí og hefur ekki komið neitt heim síðan ????
Sóley er smávaxin, rauðbröndótt og hvít á litin með smá rakað á maganum sem er ennþá að vaxa eftir ófrjósemisaðgerð í febrúar. Hún er 1 árs. Hún er með hvíta ól sem hefur róandi áhrif, hún er örmerkt og vill alls ekki láta halda á sér þannig að maður þarf að ná góðu gripi á henni ef maður ætlar að ná henni. Henni er ekkert mjög vel við ókunnuga. Hún hefur aldrei farið út hér heima eftir að við fengum hana í febrúar og var hún að venjast mjög vel hér heima í löngu ferli eftir að hún kom til okkar frá Kattholti.
Sóley kisa býr í Einholti í 105 Reykjavík (nálægt miðbænum) þannig að hún er líklegast þar og í nágrenni (Hlíðunum og miðbæ).
Ég vona að hún sé bara að þvælast um og kynnast umhverfinu sínu og komi síðan heim ????
Skráð 26 Maí 2026
Nafn: Kristel
Netfang: kristeldoggvilhjalmsdottir@gmail.com
Símanúmer: 6181209