Aðalfundur Dýrahjálpar Íslands.
Aðalfundur Dýrahjálpar Íslands 2026 verður haldinn þriðjudaginn 10. nóvember kl.18:00.
Fundurinn verður haldinn í gegnum fjarfundarbúnaðinn Google Meet, skráning á fundinn er hafin og er skráningarformið hér: https://forms.gle/NjAk8g2TEwoGcoys8 (Ath -það þarf að afrita hlekkin og líma hann í vafra)
Þeim sem skrá sig á fund verður sendur hlekkur á streymið sólarhring fyrir fund, eða kl 18.00 9. nóvember.
Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf.
Framboð til stjórnar sendist á dyrahjalp@dyrahjalp.is eigi síðar en 03. nóvember næstkomandi sem og tillögur um breytingu á lögum. Framboði skal fylgja kynning á frambjóðendum. Allir félagar sem greitt hafa innheimt félagsgjöld síðastliðinna tveggja ára geta boðið sig fram.
Lög félagsins er að finna hér: https://drive.google.com/file/d/1Q6HjHg2lB_gqkGUzwSnZuu24giK9HCrw/view
Við hvetjum félagsmenn til að taka þátt í aðalfundinum og hafa þannig áhrif á starf og framtíð Dýrahjálpar Íslands.