Velkomin á vefsíðu Dýrahjálpar Íslands!

Dýrahjálp Íslands er félag sjálfboðaliða sem leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli og stofna til þess dýraathvarf.

Frá stofnun félagsins í maí 2008 hefur Dýrahjálp Íslands aðstoðað alls 8,106 dýr í heimilisleit.

Lagertiltekt - Basar - 19. maí kl. 16-19

17 Maí 2026

Lagertiltekt - Basar til styrktar Dýrahjálp Íslands
Þriðjudaginn 19. maí kl 16-19

Hvar: Stangarhylur 1a

Við erum komin með svo mikið af allskonar sniðugu dóti og hlutum sem við náum ekki að nýta fyrir fósturdýrin okkar og við viljum koma í góðar hendur.

Til sölu verða allskonar vörur sem félagið hefur fengið að gjöf.
Má nefna:
Hunda- og kattabúr
Fugla og nagdýrabúr
Bæli og teppi
Beisli, ólar, taumar
Fatnaður
Snyrtivörur
Kort og kerti
Og margt fleira!

Allur ágóði af basarnum mun fara í dýralæknakostnað vegna fósturdýra Dýrahjálpar

Endilega kíkið við og styrkið við starfið okkar með því að gera góð kaup