English below
Ert þú með stórt hjarta, tíma og mikla ást að gefa? Langar þig að hjálpa dýrum með því að veita þeim tíma, öryggi og umhyggju þar til þau finna ný ástrík heimili?
Dýrahjálp tekur við dýrum sem eiga hvergi húsaskjól. Dýrin eru vistuð á fósturheimilum þar til þau finna framtíðarheimili.
Við þurfum því alltaf að hafa fjölbreytt fósturheimili á skrá fyrir hinar ýmsu dýrategundir. Hægt er að skrá sig fyrir hunda, ketti, fugla, nagdýr, kanínur, eða einfaldlega allar tegundir
Núna vantar okkur sérstaklega fleiri fósturheimili fyrir hunda, en við fögnum öllum nýjum fósturheimilum.
Undanfarið hafa borist óvenju margar beiðnir vegna hunda í mikilli neyð sem þurfa að komast á fósturheimili sem allra fyrst. Einnig er alltaf árstíðarbundin fjölgun dýra í neyð á vorin og yfir sumarið.
Þetta er frábært tækifæri fyrir þá sem vilja hjálpa dýrum, eða hafa áhuga á að eignast t.d. hund en vilja fyrst sjá hvernig gengur án þess að skuldbinda sig strax til lengri tíma.
Fósturheimilin eru nefnilega kjarninn í starfi okkar. Án þeirra getum við ekki aðstoðað þessa hunda, né önnur dýr, þar sem við höfum ekki athvarf til að hýsa þau á meðan þau bíða eftir framtíðarheimili.
Getur þú hjálpað?
Skráðu þig sem fósturheimili á heimasíðunni okkar: farðu í valmyndina, veldu „Viltu hjálpa“ og síðan „Skrá fósturheimili“. Þegar þú ert komin á skrá/póstlista þá færðu tölvupóst með dýrum sem eru í neyð hverju sinni og getur svarað þegar þú hefur tök á að aðstoða viðkomandi dýr.
Dýrahjálp Íslands veitir stuðning og leiðsögn á meðan dýrið er í fóstri. Félagið sér einnig um allan dýralæknakostnað sem kann að koma upp og veitir önnur nauðsynleg aðföng.
Þú þarft bara að gefa tíma þinn, ást og deila heimilinu með einum loðbolta , eða jafnvel tveimur
************************************************************
Do you have a big heart, time, and lots of love to give? ????
Would you like to help animals by giving them care, safety, and a temporary home until they find a loving forever home?
Dýrahjálp takes in animals who have nowhere else to go. They are placed in foster homes until they find their permanent homes.
We are always looking for a variety of foster homes for different types of animals. You can register as a foster for dogs, cats, birds, small animals, rabbits, or simply all species ????
Right now, we are especially in need of more foster homes for dogs, but we warmly welcome all new foster homes.
Recently, we have received an unusually high number of requests for dogs in urgent need who must be placed in foster care as soon as possible. There is also a seasonal increase in dogs needing help during spring and summer.
This is a great opportunity for those who want to help animals, or for anyone considering getting a dog but wanting to see how it goes first, without a long-term commitment.
Foster homes are truly the heart of our work. Without them, we cannot help these dogs, or other animals, as we do not have a shelter facility to house them while they wait for permanent homes.
To be able to help these animals, we need more foster homes.
Sign up as a foster home on our website: go to the menu, select “Viltu hjálpa” and then “Skrá fósturheimili”.
Dýrahjálp Íslands provides support and guidance while the animal is in foster care. The organization also covers all veterinary costs that may arise during the foster period and provides other necessary supplies.
All you need to do is give your time, your love, and share your home with a furry friend, or even two.