Velkomin á vefsíðu Dýrahjálpar Íslands!

Dýrahjálp Íslands er félag sjálfboðaliða sem leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli og stofna til þess dýraathvarf.

Frá stofnun félagsins í maí 2008 hefur Dýrahjálp Íslands aðstoðað alls dýr í heimilisleit.

Félagsgjöld 2023

31 Júl 2023

Við erum búin að senda út greiðsluseðla fyrir félagsgjöldin í ár.

Þetta er annað árið sem Dýrahjálp rukkar félagsgjöld og munu allir skráðir meðlimir félagsins fá sendan greiðsluseðil í heimabankann sinn.
Starfsemi Dýrahjálpar hefur orðið mun umfangsmeiri og þyngri í rekstri sökum fjölda dýra í vanda og heimilisleit og því var tekin ákvörðun á síðasta ári að gefa félagsmönnum kleift að styrkja starfsemina með greiðslu á félagsgjöldum til að geta tekið við öllum þessum dýrum sem leitað er til okkar með og sinnt þeim með sóma.

Félagsgjöldin eru 3.500kr. í ár líkt og árið 2022.
Ath. greiðslurnar eru valkvæðar en með því að greiða félagsgjöld í félagið þá ertu bæði að hjálpa okkur að halda þessu mikilvæga starfi gangandi og hefur kosningarétt á aðalfundum félagsins og getur þannig haft áhrif á stefnu og starf félagsins.

Ef við hugsum upphæðina í mánuðum talið þá ertu að styrkja um 292 kr á mánuði, þó svo það hljómar ekki sem mikil upphæð þá mun það skipta sköpum fyrir þau dýr sem við munum getað aðstoðað, þökk sé þínu framlagi.

Ef þú ert ekki kominn með greiðsluseðill í heimabankann eða villt gerast félagi og fá sendann greiðsluseðil þá getur þú skráð þig hér https://www.dyrahjalp.is/gerast_medlimur/ ef linkurinn virkar ekki þá er hægt er að fara í fellilistann vinstra megin og velja "Vilt þú hjálpa?" og skrolla niður að "Gerast meðlimur" og ýta þar á "skrá meðlim". Nýskráðir munu fá greiðsluseðla senda til sín í heimabankann þann 14. ágúst.

Hvar birtist greiðsluseðillinn?
Við reynum eftir fremsta megni að senda valgreiðslur á alla félagsmenn. Í sumum tilfellum þá hefur það ekki gengið, og þá þurfum við að senda venjulega greiðsluseðla. Það gerist meðal annars ef fólk er „rauðmerkt“ hjá þjóðskrá þar sem það er ekki hægt að senda þannig merktum kennitölum valgreiðslur.
Þeir reikningar munu líkt og valgreiðslurnar ekki reikna dráttarvexti og verða felldir niður ef þeir eru ekki greiddir.
Við þurfum samkvæmt félagalögum okkar að senda út félagsgjöld til allra skráðra félagsmanna til að gefa þeim tækifæri á að greiða þau svo að þeir hafi atkvæðisrétt á aðalfundum. Þess vegna sendum við þessa „venjulegu“ greiðsluseðla ef það var ekki hægt að senda valgreiðslur.

Dýrahjálp hefur frá árinu 2008 aðstoðað yfir 8270 dýr! Þar af hafa yfir 800 dýr fengið framtíðarheimili eftir að hafa farið í gegnum fósturheimili á vegum félagsins.
Flest þau dýr sem þurfa á fósturheimili að halda eiga ekki í nein önnur úrræði eða skjól að leita og má með sanni segja að þau væru líklega ekki hér í dag ef ekki hefði verið fyrir aðkomu Dýrahjálpar og okkar sérhæfða fósturheimila kerfis.

Sýnum dýravernd í verki og styðjum við félög sem vinna í þágu dýranna í landinu