Velkomin á vefsíðu Dýrahjálpar Íslands!

Dýrahjálp Íslands er félag sjálfboðaliða sem leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli og stofna til þess dýraathvarf.

Frá stofnun félagsins í maí 2008 hefur Dýrahjálp Íslands aðstoðað alls dýr í heimilisleit.

Þessi geggjaði púði verður seldur til styrktar Dýrahjálp Íslands

17 Des 2012

JÓLAUPPBOÐ

Ég fékk þennan yndislega rauða/gyllta ullarhólk frá vinum mínum í Glófa til að nota í fallegan Jólapúða.

Það er og verður aðeins einn svona púði, ullin er Jólarauð með gylltum þræði saman við sem glampar dýrlega á.

Upphafsverð eru 10.000 kr og öllum er velkomið að bjóða í hann annað hvort hér fyrir neðan eða í einkaskilaboðum.

Allur ágóðinn rennur til Dýrahjálpar Íslands.

Uppboðið verður fram á Þorláksmessu, endilega deilið með vinum og vandamönnum :)

Gleðileg Jól!

Ragnheiður Ösp

http://www.umemi.com/

https://www.facebook.com/designbyumemi