Dýravinir athugið,
Enn og aftur er Dýrahjálp með ættleiðingardag í Dýraríkinu í Garðabæ. Dagsetningin er laugardaginn 6. nóvember næstkomandi frá klukkan 13:00-17:00. Þar verða dýr á vegum Dýrahjálpar Íslands sem vantar hlý og kærleiksrík heimili. Hefur þú verið að íhuga að bæta við fjölskyldumeðlim?? Endilega kíktu við og skoðaðu litlu loðboltanan okkar, hver veit nema þar sé þinn fullkomni félagi.