Messí er yndislegur og fallegur músastrákur sem er um 3-4 mánaða. Honum bráðvantar nýtt heimili þar sem bróðir hans (Ronaldo) er farinn að ráðast á hann :( Messí er smá hræddur en hefur aldrei bitið og verður án efa frabær fjölskyldu meðlimur fyrir þann sem er tilbúin/nn að hafa hann einan í búri og veita honum athygli og ást.
Vanur öðrum dýrum: Nei
Heilsufar: Alltaf verið hraustur
Fylgir: Það getur fylgt búr sem ég persónulega mæli ekki með að nota, það er frekar lítið en með rörum, þó gæti þurft að teipa fyrir einhver op. Gamalt búr sem fylgdi þeim bræðrum þegar ég tók þá. Því fylgir hjól.
Athugið að þetta dýr er ekki í umsjá Dýrahjálpar. Dýrið er enn hjá eiganda sínum sem tekur ákvörðun um framtíðarheimili. Eigandi fær umsóknina til sín og ber ábyrgð á að vera í sambandi við umsækjendur, ekki Dýrahjálp. Öll dýr auglýst á heimasíðu Dýrahjálpar eru gefins.
Allar frekari upplýsingar um dýrið fást einungis með því að sækja um dýrið og vera í sambandi við eigandann.