Velkomin á vefsíðu Dýrahjálpar Íslands!

Dýrahjálp Íslands er félag sjálfboðaliða sem leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli og stofna til þess dýraathvarf.

Frá stofnun félagsins í maí 2008 hefur Dýrahjálp Íslands aðstoðað alls 8,106 dýr í heimilisleit.

Lilli Mörgæs

4 ára kisa, 105 Reykjavík

Vegna breyttra aðstæðna á heimilnu þurfum við því miður að gefa Lilla frá okkur.

  Vanur börnum

  Vanur kisum

  Vanur öðrum dýrum: Ekki svo við vitum, aldrei látið á það reyna. Fengum hann úr Kattholti og engin saga fylgi því.

  Bólusettur

  Geldur

  Skráður

Heilsufar: Mjög hraustur, pappírar fylgja með.

Fylgir: Matarskálar, greiða,kattarkassi+sandur, matur, dót og catnip spreyt+krydd og bælið hans

Aðrar upplýsingar:

Hann er rosalega kelinn, elskar að kúra ofan á manni og fá gott klapp. Hann er mjög fjörugur í leik og bara yndi í alla staði. Verður sárt að sjá eftir honum.

Athugið að þetta dýr er ekki í umsjá Dýrahjálpar. Dýrið er enn hjá eiganda sínum sem tekur ákvörðun um framtíðarheimili. Eigandi fær umsóknina til sín og ber ábyrgð á að vera í sambandi við umsækjendur, ekki Dýrahjálp. Öll dýr auglýst á heimasíðu Dýrahjálpar eru gefins.

Allar frekari upplýsingar um dýrið fást einungis með því að sækja um dýrið og vera í sambandi við eigandann.

 

Senda umsókn