Kitkat er dásamleg innikisa, hún elskar fólk og kúrir af ástríðu - mun meira en meðalköttur. Hún er sjarmör á háu stigi og heillar flesta. Auk þess er hún eldklár og ég held stundum að hún skilji mig bara fullkomlega í samræðum ????
Hún er 17 ára gömul en það fer ekki mikið fyrir aldrinum, hún elskar að leika og er heilbrigð og glöð. Hana vantar heimili fyrir síðustu æviárin þar sem sonur minn greindist með heiftarlegt kisuofnæmi.
Vön börnum
Vön öðrum dýrum: Kitkat hefur búið með öðrum köttum en vill helst vera hin eina og sanna á heimilinu.
Bólusett
Geld
Skráð
Heilsufar: Mjög gott. Smá gigt, sem hamlar henni helst þannig að hún stekkur ekki hátt upp lengur.
Fylgir: Matar- og drykkjardallar, yfirbyggður sandkassi og skófla, leikföng
Aðrar upplýsingar:
Kitkat er mannelsk og kúrin, elskar túnfisk en ekki humar, og elskar að leika og liggja hjá manneskjunni sinni yfir sjónvarpi. Uppáhaldsþátturinn hennar er “Leynilíf katta”. Án gríns.
Hún veit fátt betra en að kúra á maga við bókalestur og við og við fylgjast með lífinu úr glugganum. Hún spjallar við manneskjuna sína og sýnir henni athygli og fagnar yfirleitt þegar komið er heim úr vinnu.
Hún er klár köttur, hlýddi ávallt kalli um að koma heim þegar hún var útikisa, stekkur aldrei upp á matarborð eða brýtur húsreglur.
Athugið að þetta dýr er ekki í umsjá Dýrahjálpar. Dýrið er enn hjá eiganda sínum sem tekur ákvörðun um framtíðarheimili. Eigandi fær umsóknina til sín og ber ábyrgð á að vera í sambandi við umsækjendur, ekki Dýrahjálp. Öll dýr auglýst á heimasíðu Dýrahjálpar eru gefins.
Allar frekari upplýsingar um dýrið fást einungis með því að sækja um dýrið og vera í sambandi við eigandann.